14.11.1952
Neðri deild: 26. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 111 í B-deild Alþingistíðinda. (198)

38. mál, verndun fiskimiða landgrunnsins

Frsm. (Pétur Ottesen):

Þetta er einnig stjfrv., sem borið er fram til staðfestingar á brbl., sem ríkisstj. gaf út á s.l. sumri. Þessi brbl. voru gefin út í sambandi við hina nýju reglugerð frá 19. marz 1952 um friðun landgrunnsins, og er efni þeirra það eitt, að sektarákvæði þeirra laga, sem í 1. gr. frv. getur, gildi á friðunarsvæðinu eins og það er nú ákveðið. — N. mælir með því, að frv. þetta verði samþykkt.