10.12.1952
Sameinað þing: 24. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 20 í D-deild Alþingistíðinda. (2333)

97. mál, fiskveiðar á fjarlægum miðum

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég ætla síður en svo að mæla gegn þessari þáltill., en það féllu orð hér hjá hv. frsm. um það, — sem ég geri ráð fyrir að hann hafi talað í nafni n., — að loftskeytastöðvarnar í hinum nýju togurum væru ekki nægilega sterkar til þess að hafa samband við land. Ég vil að gefnu þessu tilefni algerlega mótmæla þessum fullyrðingum, sem hljóta að vera fram komnar frá hv. frsm. fyrir hreinan misskilning, og skal ekki að öðru leyti ræða till.