17.12.1952
Sameinað þing: 25. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 27 í D-deild Alþingistíðinda. (2352)

94. mál, leturborð ritvéla

Frsm. (Áki Jakobsson):

Herra forseti. Allshn. hefur haft þetta mál til athugunar. Það var líka flutt á síðasta þingi, og n. hafði mælt með því þá, og hún er sammála um að mæla með afgreiðslu þessa máls. Ég vil í því efni bara vísa tll grg. og þess fskj., sem fylgir með till. á þskj. 116, með þeim rökum, sem liggja að þessu máli, og ætti að vera hægt með lítilli fyrirhöfn að fá leiðréttingu á því efni, sem till. fjallar um.