05.02.1953
Sameinað þing: 37. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 84 í D-deild Alþingistíðinda. (2451)

117. mál, náttúruauður landsins

Frsm. (Eiríkur Þorsteinsson):

Herra forseti. Allshn. hefur athugað þessa þáltill. á þskj. 168 og orðið sammála um að mæla með, að hún verði samþ. með smávægilegum orðalagsbreytingum, sem sjá má á þskj. 693. — Ég sé ekki ástæðu til að ræða um þessa þáltill. nánar. Hún skýrir sig sjálf, grg. er mjög ýtarleg, og þarf ég þess vegna ekki að hafa fleiri orð þar um.