29.01.1953
Sameinað þing: 34. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 88 í D-deild Alþingistíðinda. (2472)

208. mál, hveraleir, hveragufa og hveravatn til lækninga

Flm., (Jörundur Brynjólfsson):

Herra forseti. Ég hef ásamt hv. samþm. mínum leyft mér að flytja þessa þáltill., og vænti ég, að hv. Alþ. taki því máli vel Ég sé ekki ástæðu til þess að fjölyrða um málið að þessu sinni, get vísað um efni þessarar ályktunar til grg. og álitsgerðar sérfræðings, sem er prentuð sem fylgiskjal. Ég vil leyfa mér að þessari umræðu lokinni að leggja til, að málinu verði vísað til allshn., og vonast til þess, að sú hv. n. afgreiði málið mjög bráðlega, svo að það geti fengið samþykki á þessu þingi.