12.11.1952
Sameinað þing: 12. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 343 í D-deild Alþingistíðinda. (2797)
220. mál, þátttaka Íslands í Bernarsambandinu
Viðskmrh. (Björn Ólafsson):
Herra forseti. Hv. 3. landsk. tók fram í síðustu ræðu sinni, að ég hefði gefið þær upplýsingar, að allt það fé, sem greitt hefur verið frá útvarpinu til STEFS væri fyrir verk íslenzkra höfunda. Ég held, að ég hafi aldrei tekið það fram, enda hef ég sjálfur jafnan staðið í þeirri meiningu, að þetta væri fyrir alla flutta tónlist í útvarpinu, enda gildir samningurinn um það, eftir því sem ég veit bezt. Ég vildi aðeins leiðrétta þetta.