19.11.1952
Sameinað þing: 14. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 355 í D-deild Alþingistíðinda. (2817)

222. mál, veðlán til íbúðabygginga

Fyrirspyrjandi (Rannveig Þorsteinsdóttir):

Ég ætla að leyfa mér að þakka hæstv. forsrh. fyrir svörin. Það er nú auðséð á þessu, að málið er að vísu í rannsókn, en það er ekki lengra komið. Og ég þakka honum jafnframt fyrir það loforð hans að gefa Alþ. skýrslu um málið, þegar eitthvað frekar liggur fyrir.