02.02.1953
Neðri deild: 62. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 196 í C-deild Alþingistíðinda. (3067)

29. mál, atvinnuleysistryggingar

Frsm. meiri hl.(Páll Þorsteinsson):

Herra forseti. Heilbr.- og félmn. gat ekki orðið sammála um afgreiðslu þessa frv. Meiri hl. n. hefur gefið út allýtarlegt álit um málið á þskj. 520, og læt ég nægja að vísa til þess um afstöðu meiri hl. n. til frv., sem hér liggur fyrir.