03.10.1952
Efri deild: 3. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 148 í B-deild Alþingistíðinda. (307)

9. mál, tollskrá o. fl.

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Það er lagt til í þessu frv. að framlengja fyrir næsta ár viðauka á vörumagnstoll og verðtoll og enn fremur heimildir til þess að undanþiggja þessum hækkunum víssar vörutegundir, sem greinir í 2. gr. laganna. Þessir viðaukar hafa verið lögfestir ár eftir ár undanfarið, og fjárlagafrv. ber það með sér, að ríkissjóður má ekki án þessara tekna vera. Ég legg til, að þessu máli verði vísað til hv. fjhn. að lokinni umr.