08.12.1952
Neðri deild: 36. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 334 í C-deild Alþingistíðinda. (3240)

83. mál, brúargerðir

Forseti (SB):

Út af þessum ummælum hv. þm. vil ég aðeins taka það fram, að það álit hlýtur þá að hafa borizt nú allra síðustu daga, laugardag eða í dag, því að að jafnaði eru þau skjöl, sem berast samgmn., flutt n. þegar er þau berast. En ég ítreka þau ummæli, að málið skal verða afgreitt.