08.12.1952
Neðri deild: 36. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 411 í C-deild Alþingistíðinda. (3318)

169. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins

Pétur Ottesen:

Það er mikið rétt, að efnislega að sumu leyti ætti þetta mál heima í sjútvn. og ætti að fá meðferð þar. En ég vil benda á, að einn ekki lítill þáttur þessa frv. felur í sér stór árleg fjárframlög úr ríkissjóði, og að því leyti á þetta mál auðvitað frekar heima í fjhn. heldur en sjútvn. Og af því að hér var minnt á, að frv. um framleiðsluráð landbúnaðarins hefði áður fyrr verið í landbn., þá vil ég á það benda, að engin slík fjárframlög úr ríkissjóði voru tengd við það frv. Ég vildi þess vegna styðja þá till., sem flm. þessa frv. hefur borið fram, að eðlilegt væri, að þessu máli — vegna þeirra miklu fjárframlaga úr ríkissjóði, sem það felur í sér — væri vísað til fjhn.