18.11.1952
Efri deild: 28. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 561 í C-deild Alþingistíðinda. (3482)
69. mál, kaup á togurum og togveiðibát
Forseti (BSt):
Út af margendurteknum ummælum hv. þm. Barð. út af því, að hæstv. fjmrh. er hér ekki viðstaddur, vil ég geta þess, að ég lét hæstv. ráðh. vita um það, að hans nærveru væri óskað þegar þetta mál væri til umr., en þar sem hv. þm, vildi leggja sérstakan skilning um afstöðu hæstv. ráðh. til málsins sökum þess, að hann væri ekki viðstaddur, þá virðist mér það nú töluvert vafasamt, því að eins og hv. þm. veit og allir hv. dm. hér, þá er það ekki nema venjulegt, að hæstv. ráðh. séu ekki viðstaddir hér, jafnvel þó að þau mál, sem undir þá heyra, séu til umr. Og enn fremur skal ég benda á það, að hæstv. fjmrh. er þm. í Nd., og mætti þá ætla, að hann geymdi sér að láta sína afstöðu til málsins í ljós, þangað til málið kæmi til þeirrar d., sem hann á sæti í.