18.11.1952
Efri deild: 28. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 565 í C-deild Alþingistíðinda. (3487)

69. mál, kaup á togurum og togveiðibát

Haraldur Guðmundsson:

Herra forseti. Ég ætla að leyfa mér að beina eindregnum tilmælum til hæstv. forseta í þá átt, að hann sæi sér fært að taka þetta mál nú út af dagskrá, þannig að n. gæti tekið málið til athugunar á ný og séð, hvort ekki væri hægt að semja um till., sem bæði flm. og hæstv. ráðh. gætu fallizt á, þannig að málinu mætti ljúka með samkomulagi í d., ef sá möguleiki er fyrir hendi, sem mér virðist ástæða til að ætla.