29.11.1952
Efri deild: 32. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 571 í C-deild Alþingistíðinda. (3500)

69. mál, kaup á togurum og togveiðibát

Þorsteinn Þorsteinsson:

Herra forseti. Þar sem mér er kunnugt um það, að hæstv. dómsmrh. hefur hugsað sér að koma fram hér með brtt. við þetta frv. og að minnsta kosti ræða eitthvað um það, þá teldi ég það rétt og er ósk mín. þar sem hann er ekki kominn í d., að umr. væri frestað um stundarsakir.