19.12.1952
Neðri deild: 48. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1614 í B-deild Alþingistíðinda. (3689)

Þinghlé

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér — og ég veit, að ég mæli þar fyrir hönd allra hv. þdm. — að þakka hæstv. forseta fyrir góðar óskir til okkar þm., og ég vil leyfa mér að óska honum gleðilegra jóla og að við megum sjá hann aftur hér að loknu þessu þinghléi og þakka honum fyrir gott samstarf við okkur þm., það sem af er. Ég vil leyfa mér að biðja hv. þm. um að gera svo vel að taka undir heillaóskir mínar til forseta með því að rísa úr sætum. - [Þdm. risu úr sætum.]