08.12.1952
Efri deild: 36. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 239 í B-deild Alþingistíðinda. (418)

17. mál, þingsköp Alþingis

Forseti (BSt):

Mér hefur borizt svo hljóðandi skrifleg brtt. frá Rannveigu Þorsteinsdóttur og Páli Zóphóníassyni við þetta frv.:

„Aftan við 13. gr. bætist nýr stafliður, svo hljóðandi: Fyrir orðin „og leyfi ráðherra“ í niðurlagi sömu lagagr. kemur:„ enda neiti ráðherra ekki um leyfið.“

Till. er skrifleg og of seint fram komin og þarf því afbrigði, sem ég leita hér með.