11.12.1952
Efri deild: 38. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 246 í B-deild Alþingistíðinda. (442)

31. mál, ríkisborgararéttur

Forseti (BSt):

Ég ætla nú að sjálfsögðu ekki að blanda mér í efnislegar umræður um þetta mál á þessum stað, en þykir samt ástæða til að vekja athygli á, að ég veit ekki, hvort 2. gr. frv. skilst vel.