12.12.1952
Neðri deild: 39. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 250 í B-deild Alþingistíðinda. (466)
7. mál, innheimta
Frsm. (Skúli Guðmundsson):
Þegar ég gerði grein fyrir áliti fjhn. við 2. umr. þessa máls, þá láðist mér að geta þess, að n. veitti því athygli, að við prentun frv. hefur fallið niður að setja prósentumerki aftan við fyrstu töluna í f-lið 1. gr. Ég hef átt tal um þetta við skrifstofu þingsins og óskað þess, að þetta væri leiðrétt, þegar frv. verður prentað sem lög, og mun það verða gert. Hér er aðeins um smáleiðréttingu að ræða.