09.12.1952
Efri deild: 37. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 257 í B-deild Alþingistíðinda. (486)

11. mál, tekjuskattsviðauki

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Um allmörg ár hefur tekjuskattur verið innheimtur með viðauka, og í nokkur ár hafa gilt lagaákvæði, sem lækka skatt á lágum tekjum sérstaklega frá því, sem ákveðið er í tekjuskattslöggjöfinni. Þetta frv. fjallar um að framlengja þetta hvort tveggja, og vil ég leyfa mér að leggja til, að því verði vísað til hv. fjhn. að aflokinni þessari 1. umr.