18.12.1952
Efri deild: 43. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 334 í B-deild Alþingistíðinda. (552)

13. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Ég vildi gera uppástungu um það, að þessari umr. yrði frestað og henni lokið á morgun, svo að það gefist tóm til þess að athuga þetta málefni, sem hv. þm. Barð. talaði hér um áðan. Það er ekki hægt að athuga það núna, til þess þarf dálítinn tíma.