07.10.1952
Sameinað þing: 3. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 363 í B-deild Alþingistíðinda. (625)

1. mál, fjárlög 1953

Forseti (JPálm):

Þá er fundur settur. Er þegar gengið til dagskrár og tekið fyrir eina málið, sem er á dagskránni, frv. til fjárl. fyrir árið 1953, 1. mál, þskj. 1. 1. umr. Þessi umræða er útvarpsumræða, eins og venja er til, og talar fyrst hæstv. fjmrh. og síðan fulltrúi frá hverjum hinna þingflokkanna í 1/2 klst. Þá hefst umr., og tekur til máls hæstv. fjmrh., Eysteinn Jónsson.