09.12.1952
Sameinað þing: 23. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 562 í B-deild Alþingistíðinda. (689)

1. mál, fjárlög 1953

Forseti (JPálm):

Þá er fundur settur í Sþ. Er þegar gengið til dagskrár og tekið fyrir eina málið, sem er á dagskránni, sem er fjárl. 1953, 1. mál, þskj. 335, frh. 3. umr., og er það framhald útvarpsumr., sem hófst hér í gærkvöld. — Í kvöld verður umr. hagað á þann hátt, að það eru 3 umferðir: 1. umferð 20 mín., 2. umferð 15 mín. og 3. umferð 10 mín. Röð flokkanna við þessa umr. í öllum umferðum er þannig, að fyrst er Sameiningarfl. alþýðu — Sósfl., þá Framsfl., siðan Alþfl. og síðast Sjálfstfl.

Nú hefst umr., og tekur fyrstur til máls hv. 7. landsk. þm., Finnbogi R. Valdimarsson.