20.01.1953
Neðri deild: 53. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 786 í B-deild Alþingistíðinda. (875)

131. mál, sala jarðeigna í opinberri eigu

Frsm. (Jón Sigurðsson):

Herra forseti. Þetta frv. hefur borizt landbn. frá Ed., og n. hefur rætt það nokkuð og hefur orðið sammála um að mæla með því, að það verði samþ. með þeim breyt., að jarðirnar Kollafjarðarnes og Staður verði seldar með því skilyrði, að þær verði gerðar að ættaróðulum, og enn fremur er því bætt inn í, að veitt verði heimild til sölu eyðijarðarinnar Kolgrafarsels.

Ég sé ekki ástæðu til þess — enda fáir áheyrendur — að fjölyrða um þetta frekar; þetta liggur svo augljóslega fyrir.