30.10.1952
Efri deild: 18. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 61 í B-deild Alþingistíðinda. (90)

12. mál, gengisskráning o. fl.

Forseti (BSt):

Hv. 1. landsk. þm. gat þess, að það hefði fallið niður orð í brtt. hans á þskj. 153. Nú hefur hann borið fram skriflega brtt. þessu til leiðréttingar, við brtt. á þskj. 153, um gengisskráningu o.fl., frá Magnúsi Kjartanssyni. Á eftir orðinu „framfærsluvísitölu“ komi: næsta mánaðar á undan.

Þessi skriflega brtt., þó að hún sé nú reyndar leiðrétting, er of seint fram komin og þar að auki skrifleg og þarf afbrigði, sem ég leita hér með.