13.11.1952
Efri deild: 25. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 924 í B-deild Alþingistíðinda. (976)

42. mál, verðlag

Forseti (ÞÞ):

Mér hefur borizt brtt. við frv. það, sem hér er til umræðu, frá hv. 4. landsk., þannig:

„Við 1. gr. bætist ný málsgr., svo hljóðandi: Á þriggja mánaða fresti skal verðgæzlustjóri birta til leiðbeiningar fyrir almenning skýrslu um verð á helztu nauðsynjavörum almennings. Skal skýrslan fela í sér, eftir því sem við verður komið, samanburð á verði hinna ýmsu verzlana á sams konar vörum.“

Þessi brtt. er of seint fram komin og skrifleg og þarf því tvöföld afbrigði, sem ég leita hér með.