24.03.1954
Neðri deild: 67. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1183 í B-deild Alþingistíðinda. (1077)
12. mál, áfengislög
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Frsm. hv. allshn., hv. 3. þm. Reykv. (BÓ), gerði hér áðan nokkrar athugasemdir við brtt., sem ég hef borið fram.
N. hefur, eins og ég gat um áður, flutt till. um að nema burt úr 9. gr. frv. ákvæði um það, að óheimilt sé að gefa veitingamönnum afslátt á verði áfengis frá hinu venjulega útsöluverði. Hv. þm. segir, að það hafi þó ekki verið ætlan n., að veitingamenn eigi að fá afslátt, en hvernig stendur þá á því, ef svo er, að n. flytur till. um að nema brott þetta ákvæði úr l., að óheimilt sé áð veita afsláttinn, ef n. ætlast alls ekki til, að veitingamennirnir fái hann?
Hv. þm. segir í sambandi við brtt. mína, að hún komi úr hörðustu átt. Ég get ekki skilið, hvað hann á við með því. Ég þarf að fá nánari skýringar á þessu frá hv. þm., hvað hann hér meinar. Hann segir, að ég sé að lauma till. inn, þegar engir ráðh. séu viðstaddir. Ég vil vekja athygli á því, að þessi till. var ekki sýnd fyrst hér í kvöld að ráðh. fjarverandi. Ég man ekki betur en henni væri útbýtt á fundi hér í gær. Hún hefur legið fyrir ráðh. sem öðrum þm. síðan. Hér er því ekki um neitt laumuspil að ræða.
Hann segir sem rétt er, að ráðherrar hafi undanfarið fengið vínföng hjá áfengisverzluninni með mjög lækkuðu verði, og hann segir, að það séu fleiri, sem hafi notið þar slíkra hlunninda. Vissi ég það, og það fyrir löngu, en ég tel, að það sé einmitt enn ríkari ástæða til að samþ. mína till., því fleiri sem þeir eru, sem taka drykkjarvörur hjá þessari ríkisverzlun fyrir aðeins brot af hinu venjulega útsöluverði. Hv. þm. minnist á erlendar sendisveitir í þessu sambandi. Ég held, að ekki þurfi að hafa neinar áhyggjur af þeim. Ef sendiherrarnir telja vínið dýrt hér hjá áfengisverzluninni, þá hygg ég, að samkvæmt alþjóðavenjum, sem gilda um sendiherra, hafi þeir næga möguleika til að fá bæði drykkjarvörur og annað, sem þeir óska, frá sínum heimalöndum.
Þessar athugasemdir taldi ég rétt að gera í tilefni af þessari síðustu ræðu hv. frsm., en sé ekki ástæðu til að svo stöddu að ræða um önnur atriði þessa máls.