13.04.1954
Efri deild: 92. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1231 í B-deild Alþingistíðinda. (1211)

209. mál, gin- og klaufaveiki

Hermann Jónasson:

Herra forseti. Ég vil nú ekki fara að lengja umr., en út af því, að ég lét þau orð falla, að ég efaðist um, að það væri nokkuð minni sýkingarhætta af því að flytja inn kjöt heldur en ungviði, sem ekki eru sýkt, þá verð ég að segja það, að ég efast nú ákaflega mikið um þessar skýringar sérfræðinganna og hv. 1. þm. N-M. (PZ), þar sem ég a.m.k. veit svo mikið um gin- og klaufaveikina, að það er ekki kunnugt enn þá, hvernig hún berst.