17.12.1953
Efri deild: 39. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1293 í B-deild Alþingistíðinda. (1328)

101. mál, þingfararkaup alþingismanna

Brynjólfur Bjarnason:

Ég sé, að það hefur verið gerð svo gagnger breyting á þessu frv. í Nd., að mér finnst ekki rétt, að það verði afgr. sem lög frá Alþ., án þess að það fái frekari athugun í nefnd, og vildi því leggja til, að málinu yrði frestað og hv. n. sæi sér fært að taka málið til athugunar á ný.