17.12.1953
Efri deild: 38. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1299 í B-deild Alþingistíðinda. (1350)
90. mál, meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir svar hans. Ég þykist á því sjá, að áhugi borgarstjórans í Reykjavík beinist að því fyrst og fremst að losa bæinn undan því að þurfa að taka þátt í byggingarkostnaðinum, og það er virðingarvert og ekkert við því að segja. En samt langar mig til að Fá upplýsingar enn í þessu sambandi. Ég man það, að það var tekin af tilraunaráði búfjárræktar, held ég, jörð, sem heitir Úlfarsá, til að reisa þar drykkjumannahæli, og ég held, að ríkið hafi átt þá jörð, og ég held, að ríkið reki það. Sambandið hér á milli langar mig til að vita um. Ég hef heyrt sagt, að það mundu vera fáir menn þarna, stundum engir, og mig langar til að vita um sambandið milli þess og þessa væntanlega drykkjumannahælis, sem hér á að reka, áður en ég get fylgt málinu.
Þá minnir mig það, fullyrði það ekki heldur en mig minnir það, að það væri á síðustu fjárl. eða árið, þar áður veift af ríkinu fé til þess að steðja að kaupum á bæ eða þorpi, sem hét Kvíabryggja. og liggur vestur við Grundarfjörð, og þegar um það var rætt var sagt, að það væri vegna þess, að þar ætti að koma upp drykkjumannahæli fyrir þá menn, sem þyrftu á því að vera og sérstaklega þó þá, sem þar ættu að vinna af sér barnsmeðlög, því að þeir áttu þá sjálfsagt að vinna í Grafarnesi, sem er tiltölulega skammt frá Kvíabryggju, því að á Kvíabryggju gátu þeir ekki unnið neitt að ráði, nema kannske eitt til tvö ár að túnrækt, því að það eru engin skilyrði til vinnu fyrir lengri. tíma. Hvað hefur orðið úr þessu? Hvað eru margir af þessum drykkjumannarónum þar niður komnir núna til þess að vinna af sér meðlög eða til þess að læknast, kannske hvort tveggja? Það langar mig líka til að vita um.
Er þá meiningin að hafa hælin enn þá fleiri? Þau eru nú komin þarna þrjú. Mig langar til að vita um það, áður en ég á að fylgja þessu, hvernig eiginlega er farið með þessi hæli. Ég veit ekki annað en að ríkið eigi og reki Úlfarsá. Ég veit ekki annað en að ríkið hafi lagt fé í að kaupa Kvíabryggjuna til þess að koma þar upp einhvers konar hæli. Og ég veit ekki annað en að ríkið hafi haft handbæran sjóð, sem ég hélt og áðan var staðfest að mundi verða nú um áramótin töluvert á fjórðu millj. kr. og hefur staðið bæjarfélögum og þá náttúrlega sérstaklega því bæjarfélaginu, sem rónarnir eru í, — þeir eru nú yfirleitt ekki nema hérna, — opinn til þess að fá úr helming af stofnframlagi, en ekki hafi verið notaður. En svo kemur sjálfur borgarstjórinn, sem hafði þennan helming alltaf í annarri hendinni til að byggja fyrir, ef hann vildi, helming stofnkostnaðarins, með nýtt frv. um það, að nú skuli ríkið kosta það eitt, — það er eina brtt., — ríkið skuli kosta það eitt að öllu leyti. Það er eðlilegt, að hann hafi áhuga fyrir því, en það er ekki af áhuga fyrir rónunum, sem það frv. er komið fram.