13.11.1953
Efri deild: 20. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1321 í B-deild Alþingistíðinda. (1455)

78. mál, sala jarða í opinberri eigu

Jón Kjartansson:

Herra forseti. Ég á hér brtt. á þskj. 144 um sölu þjóðjarðarinnar Holts í Dyrhólahreppi. En vegna ágreinings, sem hefur risið um ábúð jarðarinnar og það mál er nú fyrir dómstólunum, dómur er ekki uppkveðinn enn þá, þá hef ég fallizt á að draga till. til baka að þessu sinni.