07.10.1953
Neðri deild: 4. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 85 í B-deild Alþingistíðinda. (150)
4. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Það er aðeins eitt atriði, án þess að ég vilji lengja þessar umræður mikið, því að það verður síðar rætt mikið um skattamál á þessu þingi. — Ég tók eftir því, að hv. síðasti ræðumaður sagði, þegar ég benti á, að hans flokkur hefði viljað láta í það skina, að hann vildi lækka beinu skattana, en ekki hækka þá, og mér fyndist það koma illa heim við gagnrýni hans um það, að beinu skattarnir væru of lítill hluti af opinberum tekjum, — ég tók sem sé eftir því, að hv. þm. sagði út af þessu, að beinu skattarnir væru í því formi, sem þeir eru nú innheimtir hér á Íslandi, fyrst og fremst skattar á launamönnum og því væri ekki eftir því að sjá, þó að þeir væru ekki hærri hér. Nú vildi ég aðeins spyrja hv. þm. að því, hvað hann á við með þessu. Hann meinar væntanlega, að aðrir komi sér undan að greiða skattana, eins og kerfið sé. Ég vil aðeins spyrja hann: Getur hann bent á nokkur einföld og heppileg úrræði til þess að bæta úr þessu?