29.03.1954
Neðri deild: 72. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1404 í B-deild Alþingistíðinda. (1557)

119. mál, Búnaðarbanki Íslands

Jón Pálmason:

Herra forseti. Þetta frv., sem er flutt af hv. landbn. þessarar d., hefur nú gengið í gegnum hv. Ed. og tekið þar þeim einu breytingum, að upphæðin, sem um er að ræða, er hækkuð um þriðjung, frá 800 þús. upp í 1200 þús. Eins og gefur að skilja, þá fagnar landbn. þessarar d. þessari breytingu, og vil ég fyrir nefndarinnar hönd mæla með því, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir, óbreytt.