25.03.1954
Neðri deild: 68. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1493 í B-deild Alþingistíðinda. (1758)
181. mál, orkuver og orkuveitur
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Þetta frv. er í raun réttri flutt af öllum þm. af Austurlandi, þó að rituð séu á frv. aðeins nöfn þeirra, sem eiga sæti í deildinni.
Frv. er um að setja í lög heimild til þess að virkja Lagarfoss á Fljótsdalshéraði og leggja línur þar út frá, sem greinir í 1. gr. Það eru fyrir í lögum heimildir til þess að virkja annaðhvort Fjarðará í Seyðisfirði eða Grímsá á Völlum. Það hefur ekki fram að þessu verið talið koma til mála að virkja Lagarfoss að svo stöddu, en við síðustu rannsóknir, sem fram hafa farið, hefur þetta breytzt, og þess vegna leggjum við nú til, að það verði sett í lög heimild til þess að virkja Lagarfoss.
Ég vil óska þess, að málinu verði vísað til hv. fjhn. að lokinni umr., þ. e. a. s., það er sami háttur og hafður var á um annað frv. samkynja hér á dögunum.