07.12.1953
Efri deild: 29. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1500 í B-deild Alþingistíðinda. (1796)

63. mál, síldarleit

Forseti (GíslJ):

Út af ósk hv. frsm. vil ég leyfa mér að benda á, að hér er aðeins um 2. umr. að ræða. Sér ekki hv. form. n. möguleika til þess að leyfa málinu að ganga áfram nú við þessa umr. og athuga þetta milli 2. og 3. umr.? Geta ekki hv. aðilar komið sér saman um það, að það sé nægilegur tími til þess, eða heldur hv. form. fast við, að málinu sé frestað?