09.04.1954
Neðri deild: 84. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1526 í B-deild Alþingistíðinda. (1922)

196. mál, innheimta meðlaga

Frsm. (Eggert Þorsteinsson):

Herra forseti. Allshn. hefur yfirfarið þetta frv., sem flutt er að ósk dómsmrh., og leggur einróma til, að frv. verði samþ. óbreytt. Ég tel, að óþarft sé að fara um þetta frv. frekari orðum. Á þskj. 632 eru allar upplýsingar um þetta mál og aðdraganda þess, eins og það liggur nú fyrir. Allshn. er á einu máli um að mæla með frv. óbreyttu eins og það var lagt fram.