26.03.1954
Neðri deild: 70. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1556 í B-deild Alþingistíðinda. (1995)

173. mál, brunatryggingar í Reykjavík

Frsm. meiri hl. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. Vegna þess að frv. um brunatryggingar hefur tekið talsvert miklum breytingum frá því, sem það var, þegar það var lagt fram, vildi ég óska eftir, að málið yrði ekki nú þegar tekið á dagskrá, til þess að tími ynnist til þess að koma með brtt.