02.04.1954
Efri deild: 76. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1610 í B-deild Alþingistíðinda. (2037)

173. mál, brunatryggingar í Reykjavík

Forseti (GíslJ):

Út af ósk hv. þm. um að fresta málinu til þess að gefa tíma til þess að koma fram með brtt. við þá brtt., sem hér um ræðir frá hv. meiri hl., vil ég taka það fram, að ég tel, að sú efnisbreyting, sem hann talar um, sé ekki svo flókin, að ekki sé hægt að gera það hér á þessum fundi, og mun ekki af þeim ástæðum fresta umr.