05.04.1954
Neðri deild: 77. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1645 í B-deild Alþingistíðinda. (2102)
155. mál, landamerki o. fl.
Frsm. (Einar Ingimundarson):
Herra forseti. Allshn. hefur athugað frv. það, sem hér liggur fyrir um breyt. á l. nr. 41 28. nóv. 1919, um landamerki o. fl. Hefur n. sent lagadeild Háskóla Íslands og hæstarétti frv. þetta til athugunar og umsagnar. Hefur lagadeild háskólans einróma og eindregið mælt með því, að frv. þetta verði samþ. óbreytt, og fjórir af fimm hæstaréttardómurunum hafa einnig lagt til, að breytingar þær, sem í frv. þessu felast, verði lögfestar. Allshn. leggur til, eins og segir í nál., að frv. verði samþ. óbreytt.