05.04.1954
Neðri deild: 77. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 1646 í B-deild Alþingistíðinda. (2103)

155. mál, landamerki o. fl.

Björn F. Björnsson:

Herra forseti. Ég vil þakka hv. allshn. fyrir afgreiðslu hennar á þessu máli, en jafnframt fara þess á leit við hæstv. forseta, að hann sæi sér fært að þoka þessu máli áfram svo mjög sem auðið er, því að báðir höfum við flm. töluverðan áhuga fyrir því, að þetta mál nái fram að ganga á þessu þingi, ef auðið er.