01.04.1954
Neðri deild: 75. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 18 í C-deild Alþingistíðinda. (2156)

23. mál, uppsögn varnarsamnings

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Alþfl. hefur í sameinuðu þingi flutt þáltill., þar sem gert er ráð fyrir annarri meðferð á því máli, sem hér er um að ræða, en þetta frv. fjallar um, og mótast afstaða mín til málsins að sjálfsögðu í heild af því, sem í þeirri till. felst, og er ég þessu frv. ósammála. Hins vegar vil ég ekki standa gegn því, að það fái þinglega meðferð eins og önnur mál, og segi þess vegna já.