09.04.1954
Efri deild: 83. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í C-deild Alþingistíðinda. (2188)

111. mál, menntun kennara

Hermann Jónasson:

Herra forseti. Ég mun greiða atkv. með þessari brtt., vegna þess að ég álít, að eins og málið núna liggur fyrir og komið hefur fram í umr., þá er órannsakað um þetta húsnæði, sem til staðar er á Akureyri, hvort möguleikar eru þar fyrir heimavist, ekki heldur upplýst um kennara. En með því að samþ. þessa till. er hægt að rannsaka þetta mál, áður en nokkur ákvörðun er tekin. Þess vegna mun ég greiða atkv. með brtt. en ef hún verður felld, mun ég greiða atkv. á móti málinu. Ég segi þess vegna já.