08.10.1953
Neðri deild: 5. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 142 í C-deild Alþingistíðinda. (2315)

3. mál, hlutafélög

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Ég get látið mér nægja að vísa til þess, sem ég sagði um frv. hér á undan [firmu og prókúruumboð], og vil eindregið mælast til þess við hv. allshn., að hún reyni að hraða meðferð sinni á málinu svo nú, að frv. geti fengið afgreiðslu í þessari d. nægilega tímanlega til þess, að líkur séu til, að það nái fram að ganga á þinginu.

Ég legg til, að frv. gangi til 2. umr. og hv. allshn.