13.04.1954
Neðri deild: 95. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 246 í C-deild Alþingistíðinda. (2426)

165. mál, ríkisborgararéttur

Björn Ólafsson:

Herra forseti. N. hefur athugað frv., eins og það liggur nú fyrir, milli funda, og eins og ég gat um í dag við fyrri umr. málsins, þá telur hún, að frv. eigi ekki að ganga fram eins og það er nú, vegna þess að til eru um tuttugu umsækjendur, sem líkt stendur á um og þá, sem komizt hafa inn á frv. nú, en hafa ekki verið teknir með. N. hefur þó ekki viljað gera þetta mál erfiðara með því að leggja til, að þessir umsækjendur yrðu settir inn á frv., og mun láta afskiptalaust, að frv. gangi áfram til Ed.