13.04.1954
Neðri deild: 95. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 250 í C-deild Alþingistíðinda. (2431)

165. mál, ríkisborgararéttur

Páll Þorsteinsson:

Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur fyrir til umr., var lagt fram í hv. Ed. Við það voru fluttar nokkrar brtt. þar í deild og allmargar þeirra felldar. Nú hefur svo skipazt, að þessi hv. d. hefur samþ. inn í frv. allmargar brtt., sem hér voru fluttar, og m. a. nokkrar þeirra, sem fluttar voru upphaflega í hv. Ed. Meðan málið var til umr. í hv. Ed., flutti hv. þm. V-Sk. (JK) till. um það, að Kissmann, Dorothea, húsmóðir í Hörgsdal á Síðu, fengi íslenzkan ríkisborgararétt. Ég hef leyft mér að taka þessa till. upp, svo að hún komi einnig til atkv. hér í þessari hv. d.