29.10.1953
Neðri deild: 13. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 365 í C-deild Alþingistíðinda. (2567)

65. mál, friðun rjúpu

Forseti (SB):

Það hafa komið uppástungur um tvær n., og verður sú till. borin upp fyrr, sem fyrr kom fram. En það er rétt, að fuglafriðunarlög hafa áður verið til meðferðar hjá hv. menntmn. og náttúrlega eðlilegast, að hún fjalli um bæði þau frv., sem hér hefur verið rætt um, væntanlegt frv. frá hæstv. ríkisstj. um almenn fuglafriðunarlög og það mál, sem hér liggur fyrir. — Verður borin upp till. hv. flm. um það að vísa frv. til hv. landbn.