16.11.1953
Neðri deild: 23. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 445 í C-deild Alþingistíðinda. (2613)

85. mál, kosningar til Alþingis

Forseti (HÁ):

Þá hafa ekki fleiri kvatt sér hljóðs, og er umræðu lokið. — Út af ósk hv. 1. landsk. um það, að á þessum fundi verði felldur úrskurður um málið og því hraðað til 2. umr. og nefndar, þá vil ég minna á, að forseti gat þess, þegar hann leyfði umræðuna, m. a. til þess að eiga kost á að hlýða á rök með og móti, að úrskurður yrði síðar felldur. Þau rök hafa verið flutt, og þess er því ekki að vænta, að forseti felli úrskurð á stundinni, en ég geri ráð fyrir því, að hv. flm. þurfi ekki að óttast það, að málið dragist óeðlilega vegna þess, að úrskurðar verði svo mjög langt að bíða.