16.11.1953
Neðri deild: 23. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 448 í C-deild Alþingistíðinda. (2623)

86. mál, sveitarstjórnarkosningar

Flm. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Í þessu frv. felst það eitt, að sömu reglur og gert er ráð fyrir að teknar verði í kosningalögin samkvæmt frv. því, sem var til 1. umr. nú áðan, skuli einnig gilda um sveitarstjórnarkosningar. Efnisrök málsins eru því nákvæmlega þau sömu og þar voru flutt, og sé ég ekki ástæðu til að endurtaka neitt af þeim hér, heldur óska einvörðungu eftir því, að þessu máli verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.