09.11.1953
Neðri deild: 19. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 472 í C-deild Alþingistíðinda. (2648)

89. mál, olíueinkasala

Karl Guðjónsson:

Ég tel, að óeðlilegt sé að ljúka 1. umr. málsins á þessu stigi, þar sem mikilsverðar upplýsingar vantar enn, og harma það þess vegna, að málinu skyldi ekki vera frestað. En vegna þess, að ég er fylgjandi því, að málið nái fram að ganga, þá vil ég ekki eiga hlut að því, að það verði fellt frá því að komast til 2. umr., og segi þess vegna já.