13.04.1954
Sameinað þing: 49. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 91 í D-deild Alþingistíðinda. (2962)
206. mál, togaraútgerðin
Jóhann Jósefsson:
Herra forseti. Ég tel engan veginn óhugsandi, að ýmislegt af því, sem talið er upp í þessari brtt., megi vera liður í þeim ráðstöfunum, sem þarf að gera eða gerðar kunna að vera. Á hinn bóginn álít ég, að á þessu stigi málsins beri ekki að sníða þeirri n., sem fær þetta mikla verkefni í hendur, neinn sérstakan stakk, og segi því nei við þessari brtt.