29.10.1953
Neðri deild: 13. fundur, 73. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í B-deild Alþingistíðinda. (30)

14. mál, kosningar til Alþingis

Frsm. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. Frv. þessu var vísað til allshn. d., og hefur hún athugað það. Þetta er staðfesting á brbl., sem gefin voru út fyrir síðustu kosningar, og er að vísu þegar orðin á eftir tímanum, en n. fannst ástæða til þess að afgr. það í d. þrátt fyrir það og leggur til, að frv. verði samþykkt.